slideshow image
Hótel Ísafjörður • Silfurtorg 2 • 400 Ísafjörður • Sími: 456-4111 • Fax: 456-4767 • info@hotelisafjordur.is

Samgöngur

Hótel Ísafjörður er við Silfurtorg í hjarta Ísafjarðar. Í næsta nágrenni hótelsins eru verslanir, þjónustufyrirtæki og opinberar stofnanir. Til að sjá hvar hótelið er, er best að skoða götukortið á Já.is.

Samgöngur á landi

Milli Reykjavíkur og Ísafjarðar eru 455 allt á bundnu slitlagi. Leiðin frá Reykjavík liggur í gegnum Búðardal, Arnkötludal, Hólmavík og yfir Steingrímsfjarðarheiði. Að sumarlagi (frá páskum u.þ.b. og fram að jólum) er hægt að aka um jarðgöngin, yfir Gemlufallsheiði, Hrafnseyrarheiði og Dynjandisheiði til Brjánslækjar og taka Breiðafjarðarferjuna Baldur til Stykkishólms og halda þaðan áfram til Reykjavíkur. Leiðin um Arnkötludal og Djúp til Ísafjarðar er opin allt árið eins og veður leyfir. Vinsamlegast kynnið ykkur frekari upplýsingar á www.vegagerdin.is , sérstaklega yfir vetrartímann.

Ferjan Baldur

Breiðafjaraðrferjan Baldur fer tvisvar á dag milli Stykkishólms og Brjánslækjar á sumrin og einu sinna á dag á veturna. Frá Brjánslæk er aðeins 122 km akstur til Ísafjarðar. Sjá nánar á www.seatours.is

Flugsamgöngur

Ísafjarðarflugvöllur er aðeins í 6 km fjarlægð frá miðbæ Ísafjarðar.
Flugfélag Íslands flýgur 2-3 ferðir á dag milli Ísafjarðar og Reykjavíkur allt árið. Flugtími milli Ísafjarðar og Reykjavíkur er aðeins 35 mínútur. Sjá nánar á www.flugfelag.is

Flugrúta

Flugrúta ekur til og frá Hótel Ísafirði og Hótel Eddu í tengslum við flug Flugfélags Íslands.

Leigubílar

Leigubílar eru oftast staðsettir á flugvelli við komu flugs. Þó er oft betra að hringja á undan sér í síma 456-3518.

Áætlunarbílar og rútur

Strætisvagnar aka innanbæjar á Ísafirði og til Flateyrar, Suðureyrar, Þingeyrar, Súðavíkur og til Bolungarvíkur á virkum dögum. Á sumrin aka áætlunarbílar á milli Ísafjarðar, Hólmavíkur, Akureyrar og Reykjavíkur og einnig á Brjánslæk og út á Látrabjarg. Hægt er að leigja rútur fyrir stóra jafnt sem litla hópa. Sjá nánar á heimasíðu Vesturferða www.vesturferdir.is

Veður og færð

Á vef BB bb.is er hægt að fylgjast með veðri og færð, auk þess að sjá veðrið í bænum og á skíðasvæðinu í Tungudal í gegnum veðurmyndavélar sem eru á þessum stöðum.

Vefmyndavélar

Vefmyndavél 1, séð út á Pollinn frá Hótel Ísafirði.

Vefmyndavél 2, séð út á Silfurtorg frá Stjórnsýslushúsinu.