BÓKUNARREGLUR


Bókunarskilmálar fyrir Hótel Ísafjörð hf. 

Hótel Ísafjörður hf. á og rekur tvö hótel, eitt gistihús og hostel. Einnig rekur fyrirtækið sumarhótel, Hótel Torfnes (áður Hótel Edda). 

Hótel Ísafjörður | Torg, Silfurtorg 2, Ísafirði.

Hótel Ísafjörður | Horn, Austurvegur 2, Ísafirði.

Guesthouse Ísafjörður | Gamla, Mánagötu 1 and 5, Ísafirði.

Þessir bókunarskilmálar gilda á öllum þessum gististöðum og Hótel Torfnesi.

 

HÓTELREGLUR OG BÓKUNARSKILMÁLAR FYRIR EINSTAKLINGSBÓKANIR 

  1. Gestir þurfa að innrita sig á milli 15:00 og 22:00 á komudegi og skrá sig út fyrir klukkan 11:00 á brottfarardegi. Seina komu þarf að tillkynna. Ef gestur / umboðsmaður tilkynnir ekki seina komu getur hótelið úthlutað herberginu eftir klukkan 19:00 á komudegi.
  2. Börn á öllum aldri eru velkomin.
  3. Gæludýr eru almennt ekki leyfð en þó er leyfilegt að hafa hund á ákveðnum herbergjum sem þarf að
    bóka sérstaklega.
  4. Grænmetis- og glútenfríir réttir eru mögulegir sé þess óskað.
  5. Þráðlaust net er á hótelinu, gestum að kostnaðarlausu.
  6. Hótelið er reyklaust svæði en reykingar eru leyfðar á lóð utandyra. Ef gestir reykja á herbergjum hefur hótelið heimild til að rukka sem nemur einni nótt.
  7. Bílastæði eru við húsið gestum að kostnaðarlausu.
  8. Vinsamlegast athugið að gæsa- og steggjapartíshópar eru ekki leyfðir á hótelinu.

 

GREIÐSLUSKILMÁLAR

Gilt kreditkort þarf til að tryggja og staðfesta bókun.

Við tökum við Visa debit og kredit, Maestro og Mastercard kortum án þóknunar.

Afbókunarskilmálar

Ef bókun er afbókuð minna en 2 dögum fyrir komu er heimilt að rukka fyrir fyrstu nótt dvalar.

Sama á við ef gestur kemur ekki án tilkynningar.

 

HÓPBÓKANIR 

Hópbókanir eiga við hópa með 10 eða fleiri gestum. Hópabókun skal vera skrifleg og innihalda eftirfarandi upplýsingar.

  1. Nafn hóps.
  2. Komu dagsetningu og áætlaðan komutíma ef komið er eftir klukkan 18 og flugnúmer ef við á.
  3. Nafn og þjóðerni gesta.
  4. Fjöldi herbergja sem bókað er og af hvaða tegund (einstaklings, hjónaherbergi, tveggja manna eða annað). Leiðsögumenn og bílstjórara skulu tilgreindir sérstaklega.
  5. Fyrir hópa stærri en 20 herbergi, er eitt einstaklingsherbergi gjaldfrjálst fyrir fararstjóra.
  6. Upplýsingar um máltíðir og aðra þjónustu sem óskað er eftir.
  7. Bókanir eru aðeins gildar þegar þær hafa verið staðfestar af hótelinu.
  8. Til staðfestingar á bókun þarf gilt kreditkortanúmer sem tryggingu ef hópur er ekki bókaður í gegnum ferðaskrifstofu.
  9. Önnur þjónusta eins og þvottur eða annað skal greiðast sérstaklega fyrir brottför.
  10. Átta (8) vikum fyrir komu skal bókun uppfærð og allar breytingar á bókun tilkynntar eins fljótt og auðið er.
  11. Sex (6) vikum fyrir komu skal herbergjalisti, nafn og þjóðerni gesta hafa borist.
  12. Ef afbókað er eftir þessa dagsetningu er afbókunargjald sem nemur eftirfarandi innheimt.
  13. 6-1 viku fyrir komu: 50% af heildarupphæð
  14. 2 sólahringum – 1 viku: 80% af heildarupphæð
  15. Minna en 2 dagar: 100% af heildarupphæð
  16. Afbókanir skulu vera skriflegar (tölvupósti) og skulu sendar á lobby@hotelisafjordur.is fyrir bókanir á öllum okkar gististöðum; Hotel Isafjordur |Torg, Hotel Isafjordur |Horn og Guesthoues Isafjordur | Gamla. Þetta á einnig við um Hótel Torfnes.

 

VERÐ OG VERÐBREYTINGAR

Verðlistar eru í sér skjali og breytast á milli árstíða og daga, bæði fyrir hópa og einstaklinga.

Hótelið áskilur sér rétt til að breyta verðum ef breytingar verða á efnahagslegum aðstæðum s.s. ekki bara gengisbreytingum, verðbólgu, aukins kostnaðar aðfanga og launa, skatta eða annarra force majeure aðstæðna.


Share by: